Níu hæða íbúðarhúsnæði við Hraunbæ

Í deiluskipulagi er gert ráð fyrir því að húsið verði …
Í deiluskipulagi er gert ráð fyrir því að húsið verði níu hæðir.

Reiknað er með því að mörg tilboð berist í lóð fyrir íbúðarhúsnæði að Hraunbæ 103A sem er nú auglýst á lóðavef Reykjavíkurborgar. Skipulag gerir ráð fyrir að á lóðinni rísi íbúðir fyrir fólk sextíu ára eða eldra.

Samkvæmt deiluskipulagstillögu á húsið að vera níu hæðir. 

Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að skrifstofa eigna og atvinnuþróunar, sem annast sölu byggingarréttar í Reykjavík, hefur í gegnum tíðina fengið fyrirspurnir um lóðina og því er búist við því að allmörg tilboð berist fyrir tilskilinn frest sem rennur út 14. desember.

Heimilt er að byggja á lóðinni fimmtíu íbúðir með 20% skekkjumörkum sem þýðir að byggja má allt að sextíu íbúðir.  Félagsbústaðir hf. hafa kauprétt á sex íbúðum í húsinu.

Gert er ráð fyrir að lóðin verði tilbúin til afhendingar um mitt næsta ár. Lóðin er 3.550 fermetrar með nýtingar­hlutfallinu 1,7 sem þýðir að heimilt byggingarmagn á lóðinni er um  6.000 fermetrar, auk bílakjallara.

Einungis er hægt að bjóða í allt byggingarmagn á lóðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK