Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs, hringdi inn fyrstu viðskiptin við opnum markaða í Kauphöllinni í morgun. Tilefnið var skráning Skeljungs á aðalmarkað Kauphallarinnar í dag en Skeljungur er annað nýja félagið sem kemur inn á markaðinn á árinu.
Um 2.500 fjárfestar óskuðu eftir kaupum á hlutabréfi í félaginu þegar að almennt útboð á hlutabréfunum fór fram 30. nóvember fyrir 12 milljarða króna. Umframeftirspurn varð á útboðinu en niðurstaða seljenda var að úthluta um 2.000 fjárfestum samtals 31,5% hlut á genginu 6,9 krónur á hlut.
„Við erum mjög ánægð að vera komin á þennan stað, með félagð á aðalmarkaði Kauphallarinnar,“ segir Valgeir í samtali við mbl.is. „Við erum líka afskaplega ánægð með þann mikla áhuga sem fjárfestar sýndu.“
Valgeir segir skráninguna mjög jákvæða fyrir félagið og hluthafa þess og segir samstarfið við Kauphöllina síðustu misseri hafa verið til fyrirmyndar. „Við höfum haft góða samstarfsaðila í þessu verkefni og hefur það gengið ákaflega vel í alla staði.“