Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 2,5 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2016, en á sama tíma 2015 var hún neikvæð um 9 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 0,4% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 1,0% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins var afgangurinn 378,4 milljarðar eða 33,8% af tekjum tímabilsins. Tekjur af stöðugleikaframlagi upp á 384,3 milljarða króna eru meðtaldar á 1. ársfjórðungi 2016, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.