Standard & Poors hækkar lánshæfismat ríkissjóðs

S&P hækkaði lánshæfismat sitt á ríkissjóð í dag.
S&P hækkaði lánshæfismat sitt á ríkissjóð í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Matsfyrirtækið Standard & Poors hækkaði í dag lánshæfismat fyrir ríkissjóð í A- úr BBB+, horfur eru metnar stöðugar. Meginástæða hækkunarinnar er sögð sterkari ytri staða. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins.

Vísað er til þess að sterk erlend staða Íslands sé einn af lykilþáttunum í hækkun lánshæfismatsins. Mikill afgangur hefur verið af viðskiptajöfnuði og óskuldsettur hluti gjaldeyrisforðans hefur vaxið verulega síðasta árið. Greiðslujöfnuður Íslands hefur farið fram úr væntingum S&P. Þá vega mikill hagvöxtur, lækkun skuldahlutfalls og sterk staða ríkisfjármála, einnig þungt í hækkun matsins. Einnig bendir lánshæfisfyrirtækið á að Ísland er með háar þjóðartekjur á mann.

Fjármálaráðuneytið segir að S&P gæti hækkað lánshæfismat ríkissjóðs frekar ef fjármagnshöft verða losuð að fullu án þess að fjármálalegum stöðugleika verði ógnað eða hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð. Lánshæfismatið gæti einnig hækkað frekar ef skuldahlutfall hins opinbera lækkar hraðar en gert er ráð fyrir í mati S&P.

Lánshæfismatið gæti lækkað ef nýlegar launahækkanir leiða til ofhitnunar hagkerfisins sem hafa myndi aukna áhættu í för með sér fyrir peninga- og ríkisfjármál og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Að sama skapi gæti frekari losun fjármagnshafta með óskipulegum hætti sem hefði neikvæð áhrif á fjármálakerfið, haft áhrif til lækkunar.

Fyrirtækið hækkaði síðast lánshæfismat ríkissjóðs í janúar 2016. Ríkissjóður er nú metinn í A flokki hjá bæði Moody´s og S&P, en ríkissjóður var síðast metinn í A flokki hjá S&P í október 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK