Ferðamenn skýra hagvöxt

Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkaði í desember fimmta mánuðinn í röð. Hagvísirinn bendir áfram til hagvaxtar yfir langtímaleitni, segir í fréttatilkynningu.

„Þrír af sex undirliðum hækka frá í nóvember en mest áhrif hefur fjölgun ferðamanna. Í öllum tilvikum er leiðrétt fyrir áhrifum árstíðasveiflu og langtímaleitni. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta virðist enn að styrkjast. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í desember hækka þrír af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í nóvember hækka einnig þrír af sex undirþáttum.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um spurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK