Fjármálaeftirlitið hefur enn ekki afgreitt umsókn BLM fjárfestinga ehf. um að fara með yfir 50% eignarhlut í Klakka, sem er 100% eigandi fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar.
Meira en fjórir mánuðir eru liðnir síðan BLM fjárfestingar keyptu 11,6% hlut sem áður var í eigu slitabús Glitnis og fór þá yfir 50% eignarhlut í Klakka. Það er umfram þann tímafrest sem kveðið er á um í lögum um fjármálafyrirtæki.
Af þessum sökum hefur umdeild sala Lindarhvols á 17,7% eignarhlut ríkisins í Klakka til BLM fjárfestinga í október síðastliðnum heldur ekki verið samþykkt af FME. Töluvert hefur verið deilt á framkvæmd Lindarhvols við þá sölu, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.