Aflýsa þurfti um 100 flugferðum frá Heathrow-flugvelli í Lundúnum í morgun vegna þoku. Í tilkynningu frá flugvellinum kemur fram að aflýsa þurfti um 8% áætlaðra flugferða.
Þá þurfti að aflýsa tugum ferða frá London City-flugvellinum og ökumenn bifreiða voru varaðir við aðstæðum eftir að það frysti á svæðinu í nótt.
Þokan tengist mjög mikilli loftmengun í suðausturhluta Englands í dag en umhverfisráðuneyti landsins varaði við henni í morgun. Var mælt með því að takmarka líkamlega áreynslu utandyra, sérstaklega þeir sem fundið hafa fyrir hósta eða verkjum í hálsi.