Lilja Björk bankastjóri Landsbankans

Lilja Björk er nýr bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk er nýr bankastjóri Landsbankans. Ljósmynd/Aðsend

Lilja Björk Einarsdóttir, 43 ára verkfræðingur, hefur verið ráðin bankastjóri Landsbankans. Lilja mun hefja störf 15. mars næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

„Bankaráð Landsbankans býður Lilju hjartanlega velkomna til starfa. Við teljum að reynsla og þekking hennar muni nýtast bankanum afar vel. Staða Landsbankans er traust og hann hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Miklar áskoranir eru í rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um þessar mundir og samkeppnin er hörð. Lilja er öflugur leiðtogi sem við treystum til að stýra Landsbankanum af festu og bæta enn frekar rekstur hans og afkomu. Stefna bankans er skýr. Landsbankinn er samherji viðskiptavina sinna, hann starfar í sátt við samfélagið og vill vera til fyrirmyndar,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, í fréttatilkynningu.

Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003.

Lilja hefur starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður í fyrirtækjum. Á árunum 2008 til 2016 stýrði Lilja starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda, að því er kemur fram í tilkynningunni. 

Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu.

„Ég hlakka til að hefja störf hjá Landsbankanum og kynnast starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum bankans. Ég mun byggja á því góða starfi sem hefur verið unnið síðustu ár. Ég lít framtíð Landsbankans björtum augum og ég mun leggja mitt af mörkum til að bankinn geti áfram veitt viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu á hagkvæman hátt,“ segir Lilja Björk í tilkynningunni. 

Hún er gift dr. Júlíusi Atlasyni verkfræðingi og eiga þau þrjú börn.

Staða bankastjóra Landsbankans var auglýst 10. desember sl. og sóttu 43 um starfið. Ráðgjafarfyrirtækið Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK