Íslendingar æstir í skandinavískar hillur

Eigandi Söstrene Grene á Íslandi, Brynja Scheving, segir að það …
Eigandi Söstrene Grene á Íslandi, Brynja Scheving, segir að það sé líklega verðið og klassísk hönnun sem heillar íslenska neytendur.

Sérstakar vegghillur frá Söstrene Grene hafa notið mikilla vinsælda meðal Íslendinga en von er á þriðju sendingunni hingað til lands á fimmtudaginn. Eigandi Söstrene Grene á Íslandi, Brynja Scheving, segir að það sé líklega verðið og klassísk hönnun sem heilli íslenska neytendur.

„Það eru til svipaðar hillur í hönnunarbúðum sem kosta tugi þúsunda. Þetta er svipað útlit, svona skandínavísk hönnun en miklu ódýrara,“ segir Brynja í samtali við mbl.is en ódýrustu hillurnar hafa verið að kosta 5.124 krónur.

Hillurnar fóru fyrst í sölu í haust og þá var hægt að fá svartar og hvítar, tveggja hæða og þriggja hæða. Hillurnar sem koma á fimmtudaginn ef veður leyfir verða aðeins hvítar og þriggja hæða en það er langvinsælasta gerðin að sögn Brynju. Þær verða til sölu á 6.840 krónur og er um lækkað verð að ræða en áður kostuðu þær 7.334 krónur.

Þetta er eins og fyrr segir þriðja sendingin sem kemur til landsins af þessum hillum. Fyrsta sendingin kláraðist mjög fljótt og var þá pöntuð önnur sending sem kom skömmu fyrir jól. Þá var helmingi meira magn en í fyrstu sendingunni en hún seldist upp á einum degi. Sendingin sem von er á á fimmtudaginn verður jafnstór og sú síðasta.

Brynja segir að það séu ekki bara Íslendingar sem hafa sýnt hillunum áhuga heldur einnig hefur verið mikill áhugi fyrir þeim í verslunum Söstrene Grene í Evrópu. Hún segir áhuga sem þennan á vörum verslunarinnar ekki einsdæmi og nefnir þegar hundruð viðskiptavina biðu fyrir utan verslun Söstrene Grene út af sérstökum hliðarborðum árið 2014. Þá mynduðust raðir fyrir utan verslanir keðjunnar í Kringlunni og Smáralind í september þegar ný vörulína kom í hús. 

Fyrri frétt mbl.is: Biðu í röð fyrir utan Söstrene Grene

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK