16.721 laungreiðandi á Íslandi

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára …
Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á síðasta ári var að jafnaði 16.721 launagreiðandi á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 705 eða 4,4% milli ára. Á síðasta ári greiddu launagreiðendur að meðaltali um 180.100 einstaklingum laun sem er aukning um 8.400 eða 4,9% samanborið við árið á undan.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Á árinu 2016 voru að meðaltali 1.577 launagreiðendur og um 24.200 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.800 eða um 18,7% frá árinu á undan.

Sömuleiðis voru að meðaltali 2.404 launagreiðendur og um 10.400 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.400 eða um 15,6% á einu ári.

„Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin,“ segir á vef Hagstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK