Ársaðild að Costco kostar 4.800 krónur

Hér má sjá vænt­an­legt út­lit versl­un­ar Costco í Kaup­túni.
Hér má sjá vænt­an­legt út­lit versl­un­ar Costco í Kaup­túni. Teikn­ing/​KRADS & THG arki­tekt­ar

Ársaðild að vöruhúsi Costco fyrir einstaklinga mun kosta 4.800 krónur á ári og fyrirtækjaaðild 3.800 krónur á ári. Aðgangur að vöruhúsi Costco er aðeins heimild þeim sem eru með aðild og gildir hún í vöruhúsum Costco um allan heim en þau eru 725 talsins.

Þetta er meðal þess sem fram kom á kynningafundi Costco sem fram fór í dag.

Vöruhús Costco í Kauptúni opnar í maí en þegar er hægt að sækja um aðild. Það er óhætt að segja að úrvalið í vöruhúsinu verði fjölbreytt en m.a. verður hægt að fá matvöru, klæðnað, raftæki, útivistarbúnað, verkfæri og heimilisbúnað í versluninni. Þá verður einnig lyfjaverslun, hjólbarðamiðstöð og gleraugnaverslun á staðnum þar sem hægt verður að fá augnskoðun  ásamt bakarís og svokallaðs sælkerahorns.

Einnig verður veitingastaður þar sem boðið verður upp á smárétti eins og pylsur og pizzur.  Þá munu einungis meðlimir hafa aðgang að eldneytisstöð Costco þar sem selt verður Kirkland Signature eldsneyti. Kirkland Signature er einkamerki Costco en á fundinum í dag kom fram að merkið einkennist af vörum sem kosta minna en sambærilegar vörur.

Costco hér á landi verður rekið af félaginu Costco Wholesale Iceland ehf. sem er í eigu móðurfélagsins Costco Wholesale Corporation. Nú þegar hefur félagið sett 6,2 milljarða í fjárfestingar á Íslandi. „Það er því hægt að segja að við séum komin til að vera,“ sagði Magan Chauhan fjármálastjóri Costco Wholesale UK á fundinum í dag.

Starfsemi Costco á Íslandi var kynnt á Hilton í dag.
Starfsemi Costco á Íslandi var kynnt á Hilton í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK