Landsnet tapaði 1,5 milljarði

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Rekstrarhagnaður Landsnets á síðasta ári fyrir fjármagnsliði nam 49,7 milljónum Bandaríkjadala eða 5.999,4 milljónum króna samanborið við 56,8 milljónir Bandaríkjadala eða 6.855,9 milljónir króna árið áður. Lækkunin er um 856,5 milljónir króna á milli ára og skýrist aðallega af hækkun afskrifta.

Þetta kemur fram í tilkynningu Landsnets.

Tap samkvæmt rekstrarreikningi nam 13 milljónum Bandaríkjadala eða 1.564,7 milljónum króna á árinu 2016 samanborið við 30,4 milljónir Bandaríkjadala eða 3.669,8 milljóna króna hagnað á árinu 2015.

„Unnið var að endurfjármögnun félagsins á árinu þar sem fjármögnun félagsins var að miklu leyti breytt yfir í bandaríkjadal í samræmi við nýjan starfrækslugjaldmiðil félagsins. Gefin voru út skuldabréf, 200 milljónir Bandaríkjadala, í lokuðu skuldabréfaútboði í Bandaríkjunum í desember 2016. Greitt var inn á verðtryggt krónulán frá stærsta eiganda félagsins og eftirstöðum skuldbreytt í bandaríkjadali. Í árslok var um 80% af fjármögnun félagsins komin yfir í bandaríkjadali samkvæmt stefnu stjórnar,“ segir í tilkynningu Landsnets.

Þá var lausafjárstaða félagsins sterk, en handbært fé í lok árs nam 18,3 milljónum Bandaríkjadala eða 2.202,6 milljónum króna og handbært fé frá rekstri á árinu nam 52,4 milljónum Bandaríkjadala eða 6.322,6 milljónum króna.

Í byrjun árs 2016 var starfrækslugjaldmiðli Landsnets breytt og er þetta því fyrsta árið sem fyrirtækið er gert upp í bandarískum dal.  Fjármögnun félagsins var að mestu leiti í íslenskum krónum og því var niðurstaða ársins Landsneti óhagstæð vegna mikillar styrkingar krónunnar.

„Á árinu var unnið að endurfjármögnun fyrirtækisins og náðist stór áfangi í þeim efnum í lok árs þegar fyrirtækið gaf út 200 milljónir Bandaríkjadala skuldabréf í lokuðu skuldabréfaútboði fyrir fagfjárfesta í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningunni.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir að með breyttri fjármögnun fyrirtækisins hafi verið dregið úr gengisáhættu og hagstæðari vaxtakjör náðust. Með þeim breytingum sem gerðar voru á fjármögnun félagsins hefur gengisáhættan minnkað verulega og fjármagnskostnaður fyrirtækisins lækkaður sem mun koma neytendum til góða í framtíðinni.

„Það er jákvætt að sjá að rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir er góður og í takt við áætlanir. Rekstur Landsnets stendur á mjög traustum grunni og má nær eingöngu skýra tap fyrirtækisins með styrkingu krónunnar á árinu og áhrif þess á fjármagnskostnað.  Fyrirtækið var áður með um 80% af fjármögnun sinni bundna í stofnlán frá stærsta eigandanum og var lánið verðtryggt í íslenskum krónum án afborgunarheimildar til ársins 2020.  Á árinu áttu sér stað viðræðum við lánveitendur og var stórt skref stigið þegar samningar náðust um innborgun inn á stofnlánið og skuldbreytingu eftirstöðva þess í árslok  2016.Breytt fjármögnun skilar okkur hagstæðari kjörum auk þess sem dregið er úr gengisáhættu,“ er haft eftir Guðmundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK