Hagnaður hjá VÍS upp á 1,5 milljarð

mbl.is/Styrmir Kári

Hagnaður VÍS á síðasta ári nam 1.459 milljónum króna samanborið við 2.076 milljónir króna. hagnað árið 2015. Samsett hlutfall var 101,7% en var 101,5% árið áður. Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 1.997 milljónum króna samanborið við 4.076 milljónir króna árið 2015. Hagnaður á hlut nam 0,65.

Stjórn félagsins leggur til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur 0,46 krónum á hlut. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er því um 1.023 milljónir króna. „Félagið sér vaxtartækifæri á markaðnum og telur arðstillöguna ekki skerða möguleika félagsins til nýtingar þeirra,“ segir í tilkynningu.

Þegar það kemur að fjórða ársfjórðungi síðasta árs nam hagnaðurinn 867 milljónum króna miðað við 86 milljónir á sama tímabili í fyrra. Samsett hlutfall var 100,4% en var 92,2% í fyrra.

Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 959 milljónum króna samanborið við 1.103 milljónir króna á sama tíma 2015.

„Það er jákvætt að iðgjöld eru farin að aukast eftir nokkurra ára stöðnun, en eigin iðgjöld jukust um 10,2% á milli ára. Vöxturinn kemur til bæði vegna hærra meðaliðgjalds og fjölgunar skírteina.  Viðskiptavinum félagsins er að fjölga og einnig eru núverandi viðskiptavinir í meiri viðskiptum við okkur en áður.  Samsett hlutfall er heldur hærra en það var árið 2015, og það verður áfram verkefni félagsins að ná því niður.  Ávöxtun fjárfestingaeigna gekk nokkuð vel við erfiðar markaðsaðstæður lengst af á árinu, og nam 7,1%.  Gjaldmiðlatap af eignum sem tilheyra erlendri starfsemi félagsins hefur neikvæð áhrif á afkomu fjárfestingastarfseminnar, en það nam 641 m.kr. á árinu,“ er haft eftir Jakobi Sigurðssyni, forstjóra VÍS.

„Á fjórða ársfjórðungi gekk rekstur félagsins ágætlega og nam hagnaðurinn 867 m.kr. sem er mesti hagnaður á einum fjórðungi síðan á þriðja ársfjórðungi 2013.  Góð afkoma skýrist af ágætri ávöxtun fjáreigna og betri afkomu af vátryggingarekstri en oft áður.

Nú stendur yfir rýni og endurskoðun á stefnu VÍS með víðtækri þátttöku stjórnar og starfsfólks. Við gerum ráð fyrir að kynna niðurstöður þeirrar vinnu á vormánuðum. Auður VÍS liggur ekki síst í frábæru starfsfólki um allt land sem hefur unnið frábært starf í krefjandi verkefnum. Það er ekki síst þeim að þakka að VÍS er jafn öflugt félag og raun ber vitni.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK