Framkvæmdir hefjast brátt við mikla byggingu sem rísa mun í Vatnsmýrinni, gegnt Öskju og Norræna húsinu og við hlið húss Íslenskrar erfðagreiningar.
Húsið hefur fengið nafnið Gróska, „nýtt hugmyndahús í Vatnsmýri sem ætlað er að verða suðupottur nýsköpunar og samstarfs háskóla og atvinnulífs,“ að því er fram kemur í umfjöllun um byggingaráform þessi í Morgunblaðinuí dag.
Þegar hefur verið ákveðið að alþjóðlegi leikjaframleiðandinn CCP flytji skrifstofur sínar frá Grandagarði í nýbygginguna. Auk CCP er ráð fyrir því gert að 30-40 fyrirtæki starfi í húsinu og þar verði að jafnaði starfandi 800-900 manns.