Parki kaupir Teppabúðina/Litaver

Úr versluninni.
Úr versluninni. Aðsend mynd

Teppabúðin/Litaver, elsta sérverslunin á Íslandi með teppi, gólfdúka, veggfóður, skrautlista og hvers kyns lausnir í gólfefnum, er flutt í verslun Parka við Dalveg en Bitter ehf, rekstarfélag Parka, festi kaup á Teppabúðinni/Litaver um mitt síðasta ár.

„Í Parka, hefur þessari rótgrónu verslun, verið fundinn staður í glæsilegri sérdeild, þar sem hún mun halda öllum sérkennum sínum að undanskilinni málningunni,“ segir í fréttatilkynningu.

Þar kemur fram að Teppabúðin/Litaver hafi upphaflega verið stofnuð árið 1965. Teppabúðin/Litaver var staðsett á Grensásvegi, en allt frá stofnun fyrirtækisins var Litaver þar til húsa.

Allir starfsmenn Teppabúðarinnar/Litavers færa sig yfir til Parka, þar á meðal Pétur Guðmundsson, fyrrum eigandi fyrirtækisins sem hefur komið að rekstri verslunarinnar síðan 1981.

„Teppabúðin/Litaver hefur verið leiðandi í sölu á hvers kyns gólfefnum og stefnir að því að bæta úrvalið enn frekar í kjölfarið á samrunanum við Parka.  Parki er því öflugri sem aldrei fyrr, enda býður Parki upp á öll helstu gólfefni, kerfisloft, alhliða innréttingar, innihurðir, veggefni ásamt því að bjóða upp á stakar vandaðar mottur undir merkjum Persíu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK