4,1% atvinnuleysi

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 193.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í janúar 2017, sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 185.300 starfandi og 7.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,1%.

Samanburður mælinga fyrir janúar 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka dróst saman um 1,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.400 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði hins vegar um 2,1 stig. Atvinnulausum fjölgaði um 2.600 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu hækkaði um 1,3 prósentustig, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

„Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 199.600 í janúar 2017 sem jafngildir 82,7% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 1,3 prósentustig frá desember 2016.

Fjöldi atvinnulausra í janúar var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 7.300 og hefur fjölgað um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í desember. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli desember 2016 og janúar 2017 eða um 0,6 stig, úr 3,0% í 3,6%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í janúar 2017 var 79,7%, sem er 1,8 stigum lægra en í desember. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað lítillega eða um 0,2 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur lækkað lítillega eða um 0,3 stig, en aftur á móti aukist um 0,7 stig þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða,“ segir í frétt Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK