Geta sótt um íbúðalán með rafrænum skilríkjum

Nýja þjónustan er sögð spara tíma og fyrirhöfn fyrir viðskiptavini …
Nýja þjónustan er sögð spara tíma og fyrirhöfn fyrir viðskiptavini þar sem þeir þurfa ekki lengur að safna saman launaseðlum, skattframtali eða öðrum gögnum heldur sækir bankinn allar lykilupplýsingar til Creditinfo og ríkisskattstjóra rafrænt. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um íbúðalán og undirrita fylgiskjöl með rafrænum skilríkjum á vef Arion banka. Í tilkynningu kemur fram að þessi nýjung styttir afgreiðslutíma íbúðalána verulega og einfaldar allt umsóknarferlið. „Umsóknarferlið sjálft tekur mjög skamman tíma, en viðskiptavinir geta alltaf gert hlé á umsókninni og tekið upp þráðinn að nýju þegar þeim hentar,“ segir í tilkynningu.

Stafræn umsókn um íbúðalán á vef Arion banka byggist á nýrri kynslóð greiðslumats sem bankinn kynnti til sögunnar í desember. Nýja þjónustan er sögð spara tíma og fyrirhöfn fyrir viðskiptavini þar sem þeir þurfa ekki lengur að safna saman launaseðlum, skattframtali eða öðrum gögnum heldur sækir bankinn allar lykilupplýsingar til Creditinfo og ríkisskattstjóra rafrænt.  

Öll skilyrði varðandi greiðslumat og veitingu íbúðaláns eru óbreytt frá því sem áður var. Áfram er lánað fyrir allt að 80% af kaupverði en í tilfelli fyrstu kaupa er lánað allt að 85%.
Lántökugjald Arion banka er óbreytt, 49.900 krónur óháð lánsfjárhæð en ekkert lántökugjald er við fyrstu fasteignakaup. Greiðslumatið er endurgjaldslaust en umsækjendur greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 krónur fyrir einstakling og 5.500 krónur fyrir hjón eða fólk í sambúð.      

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK