Hagnaður franska bílaframleiðandans PSA, sem framleiðir Peugeot og Citroen, jókst um 79% á milli ára og verður hluthöfum greiddur út arður í fyrsta skipti síðan árið 2011.
Hagnaðurinn nam 2,15 milljörðum evra í fyrra en PSA er í viðræðum um yfirtöku á bílaframleiðslu General Motors í Evrópu, Opel og Vauxhall.