Þórður nýr forstöðumaður hjá ON

Þórður útskrifaðist sem vél- og orkutæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík …
Þórður útskrifaðist sem vél- og orkutæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008.

Þórður Ásmundsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns tækniþróunar Orku náttúrunnar. Alls bárust rúmlega 40 umsóknir um starfið, sem auglýst var í byrjun febrúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þórður hefur verið verkefnastjóri hjá ON frá stofnun fyrirtækisins 2014 og var meðal annars verkefnisstjóri lagningar Hverahlíðarlagnar. Þar áður vann hann hjá verkfræðistofunni Mannviti ehf. í níu ár, 1995-2014, við verkefnaeftirlit, verkefnastjórn og síðast sem viðskiptastjóri. Sem viðskiptastjóri sá hann m.a. um öll fjárfestingaverkefni sem HRV, dótturfyrirtæki Mannvits, vann fyrir Alcoa Fjarðaál og Norðurál.

Þórður útskrifaðist sem vél- og orkutæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008.

„Tækniþróun ON sér um nýfjárfestingar fyrirtækisins, til að mynda borun vinnslu- og niðurdælingarholna, lagningu gufulagna, tækniþróun úr auðlindastraumum og þróun tæknilegra lausna til að auka rekstrarhagkvæmni virkjana ON. Fjölmörg krefjandi verkefni eru á döfinni en um þessar mundir er ON að bjóða út borun á sjö nýjum holum á Hellisheiði,“ segir í tilkynningu ON.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK