Fjölgun upp á 47.600 ferðamenn í febrúar

Ferðamenn á Þingvöllum.
Ferðamenn á Þingvöllum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Um 148 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í febrúar síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 47.600 fleiri en í febrúar á síðasta ári. Aukningin nemur 47,3% milli ára.

Ferðamönnum fjölgaði jafnframt mikið milli ára, árin á undan en aukningin var 31,2% frá 2013-2014, 34,4% frá 2014-2015 og 42,9% frá 2015-2016.

Frá áramótum hafa 284 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 59,5% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.

Greint er frá þessu á vef Ferðamálastofu.

Af vef Ferðamálastofu

Þar kemur jafnframt fram að Bretar og Bandaríkjamenn voru um helmingur ferðamanna en Bretar voru 31,9% og Bandaríkjamenn 19,5% af heildarfjölda. Tíu þjóðerni sem röðuðust þar á eftir voru eftirfarandi, Kínverjar með 5,7%, Frakkar með 4,5%, Þjóðverjar 4,4%, Kanadamenn 3,3% og Hollendingar með 2,1%.

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í febrúar eða um 12.574 og var aukningin 77%. Bretum fjölgaði um 4.198 í febrúar, sem er 9,7% aukning frá því í fyrra, Kínverjum fjölgaði um 3.954 sem var nærri tvöföldun frá því í fyrra, Kanadamönnum um 3.318 sem er rúmlega þreföldun frá því í fyrra, Frökkum um 3.042 sem er nærri tvöföldun frá því í fyrra og Þjóðverjum um 2.809 sem er 77,3% aukning frá því fyrra. Þessar sex þjóðir báru uppi 62,8% af aukningu ferðamanna milli ára í febrúar.

Ferðamenn hafa nærri fjórfaldast í febrúar á fimm ára tímabili. Þannig hafa N-Ameríkanar nærri sexfaldast, Mið- og S-Evrópubúar meira en þrefaldast, Bretar þrefaldast og ferðamenn frá löndum sem flokkast undir annað sexfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 47,3% á tímabilinu 2013-2017.

Ferðamenn við spegilslétta Reykjavíkurtjörn.
Ferðamenn við spegilslétta Reykjavíkurtjörn. mbl.is/Golli

Bent er á að hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013. Í nýliðnum febrúar voru Norðurlandabúar 4,9% ferðamanna en hlutdeild þeirra af heild hefur lækkað síðustu ár. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar aukist frá 2013 og hið sama má segja um hlutdeild þeirra sem falla undir annað. Bretar hafa verið stærsta markaðssvæðið síðastliðin fimm ár en á árinu 2017 var hlutdeild Breta 31,9%, mun lægri en á árunum 2013-2016 þegar hún var í kringum 40%. Hlutdeild Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2013 til 2017.

Þá fóru um 35 þúsund Íslendingar utan í febrúar eða 6.283 fleiri en í febrúar árið 2016. Um er að ræða 21,8% fleiri brottfarir en árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK