Munur gagnvart ódýrari hverfum að minnka

Sú þróun undanfarinna ára að verðmunur á milli dýrustu og …
Sú þróun undanfarinna ára að verðmunur á milli dýrustu og ódýrustu hverfa hafi aukist virðist hafa stöðvast. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á árinu 2016 var hæsta meðalfermetraverð á höfuðborgarsvæðinu 469 þúsund krónur í miðborg Reykjavíkur og það lægsta 275 þúsund krónum í Vöngum í Hafnarfirði. Þarna er rúmlega 70% munur sem er svipað og 2015.

Í nýrri Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans kemur fram að fermetraverðið var hæst í miðborginni árið 2016 og um 7% hærra en í næst hæsta hverfinu. Árið áður var miðborgin rúmlega 11% hærri en næsta hverfi og 14% árið þar á undan. Sé litið á næst hæstu hverfi eru Sjáland í Garðabæ, Seltjarnarnes og miðlæg svæði í Reykjavík líka hlutfallslega hærra verðlögð.

Í samanburði eins og þessum ber að hafa ýmsa fyrirvara í huga. Tölurnar byggja á viðskiptum hvers árs fyrir sig og því er einungis verið að mæla það húsnæði sem viðskipti fara fram með og tölurnar sýna meðalverð ársins.

Sé litið á hækkunina á milli áranna 2015 og 2016 …
Sé litið á hækkunina á milli áranna 2015 og 2016 sést að dýru hverfin hækkuðu ekki mest. Þar er Seltjarnarnes þó alger undantekning, en verð hækkaði langmest þar á síðasta ári. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Langmesta verðhækkunin á Seltjarnarnesi

Verðmunur milli dýrustu og ódýrustu hverfa jókst mikið frá 2003 til 2006. Munurinn minnkaði svo aftur fram til ársins 2008 en tók svo að vaxa á ný og var árið 2014 meiri en nokkru sinni fyrr. Á árinu 2015 dró svo aftur saman með dýrasta og ódýrasta hverfi og var sá munur nær óbreyttur í fyrra.

Síðustu misseri hefur verið töluverð umræða um mikla spurn eftir íbúðum á miðlægum svæðum sem hafi ýtt verðum þar upp á við. Svo virðist sem staðan hafi breyst nokkuð þar sem hækkun á miðsvæðum í Reykjavík, t.d. miðborginni, er minni en víða annars staðar.

Sé litið á hækkunina á milli áranna 2015 og 2016 sést að dýru hverfin hækkuðu ekki mest. Þar er Seltjarnarnes þó alger undantekning, en verð hækkaði langmest þar á síðasta ári.

Meðalhækkun þeirra hverfa á höfuðborgarsvæðinu sem Þjóðskrá birtir upplýsingar um var um 11% á milli 2015 og 2016, en meðalhækkun fjölbýlis á öllu svæðinu var um 12%. Tölurnar hér sýna að verðhækkun í miðborginni er nokkuð í takt við þá tölu. Af dýrari hverfum hækka Seltjarnarnes, Teigar og Tún og Grandar meira en miðborgin. Á milli áranna 2015 og 2016 hækkaði verð mest í Húsahverfi, um 25%. Minnstu hækkanirnar 2016 voru í Kórum, Hvörfum og Þingum, rúmt 1%, og í Húsahverfi, um tæp 2%.

Fólk farið að líta út fyrir miðborgina

Sú þróun undanfarinna ára að verðmunur á milli dýrustu og ódýrustu hverfa hafi aukist virðist hafa stöðvast. Það kann að skýrast af því að mikil umframeftirspurn í miðborginni hafi aukið möguleika á sölu í minna miðlægum hverfum meira en í öðrum hverfum. Þá hefur fasteignaverð hækkað mikið undanfarin misseri og væntanlega er fólk farið að hugsa meira um hvar mest fæst fyrir peningana. Hér skiptir einnig máli að þjóðin er fremur ung og fyrstu kaupendur hafa tæplega efni á öðru en að fara út á jaðra höfuðborgarsvæðisins. Þá kann tiltölulega lágt bensínverð undanfarin misseri að hafa haft áhrif á búsetuákvarðanir fólks m.t.t. ferðakostnaðar til og frá vinnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK