Costco-kortin farin að berast

Ýmis afsláttarkjör og 1.500 króna inneign fylgja kortinu sé sótt …
Ýmis afsláttarkjör og 1.500 króna inneign fylgja kortinu sé sótt um fyrir opnun.

Costco aðildarkortin eru tekin að berast væntanlegum viðskiptavinum enda styttist í opnun vöruhússins í Kauptúni. Tveir mánuðir eru í opnun Costco.

Nokkur þúsund einstaklingar og fyrirtæki hafa þegar sótt um aðild að vöruhúsinu á Íslandi og eru framkvæmdir á áætl­un. Er Kauptún þegar farið að bera þess merki en bensínstöðin er til dæmis langt á veg komin.

Ársaðild að Costco fyr­ir ein­stak­linga kost­ar 4.800 krón­ur á ári og fyr­ir­tækjaaðild 3.800 krón­ur. Aðgang­ur að Costco er aðeins heim­ill þeim sem eru með aðild. 

Líkt og mbl greindi frá á dögunum hefur Costco þegar ráðið 135 manns til starfa hjá fyrirtækinu á Íslandi og hafa yfir 800 umsóknir borist um þau 200 störf sem í boði eru.

Mikið er um að vera í Kauptúni í Garðabæ þessa …
Mikið er um að vera í Kauptúni í Garðabæ þessa dagana þar sem stefnt er að opnun Costco. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK