Tekjur Tempo jukust um 41%

Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Tempo.
Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Tempo.

Tekjur hugbúnaðarfyrirtækisins Tempo, dótturfélags Nýherja, jukust um 41% milli ára og námu 13 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári. Meðal nýrra viðskiptavina Tempo á árinu má nefna fyrirtæki á borð við Mercedes-Benz, Starbucks, Porsche og Estee Lauder. 

Sem fyrr kom meginhluti tekna Tempo erlendis frá en Bandaríkin eru stærsti markaður fyrirtækisins, auk Bretlands og Þýskalands.

Árið 2016 reyndist viðburðaríkt hjá Tempo. Umsvifin jukust verulega og hið sama gerðu tekjurnar. Á þessu ári munum við svo kynna fjölmargar nýjungar sem munu auka virði lausna Tempo til muna fyrir viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Ágústi Einarssyni, framkvæmdastjóra Tempo, í tilkynningu.

Við höfum verið að þróa samþættingu kerfa og gera þau enn notendavænni. Þannig auðveldum við viðskiptavinum okkar enn frekar að safna gögnum, vinna úr þeim og taka mikilvægar ákvarðanir í rekstri. Rekstur ársins 2017 fer vel af stað og ljóst að það stefnir í enn eitt frábært rekstrarár.“

Á árinu 2016 bættust ríflega 2.800 viðskiptavinir við hjá Tempo og starfsfólki fyrirtækisins í Norður-Ameríku heldur áfram að fjölga jafnt og þétt í takt við aukin umsvif.

Tempo þróar hugbúnaðarlausnir sem er ætlað að hjálpa fyrirtækjum að vinna á auðveldari og skilvirkari hátt. Viðskiptavinir Tempo eru fyrirtæki um allan heim, allt frá sprotafyrirtækjum í Fortune 500-fyrirtæki, eins og Amazon, BMW, Pfizer, HomeAway, PayPal, Hulu, Dell, Mercedes Benz, Starbucks, Porsche og Disney. Tempo er dótturfélag Nýherja og var formlega stofnað 1. febrúar 2015.

Hjá Tempo vinna um 90 starfsmenn, bæði á Íslandi og í Norður-Ameríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK