Costco hóf í fyrra að framleiða og selja Kirkland golfkúlur sem nutu gríðarlegra vinsælda. Eftir að kúlurnar fengu góðar umsagnir hjá ýmsum fagaðilum seldust þær upp og voru fjarlægðar af heimasíðu fyrirtækisins í lok síðasta árs eftir að verksmiðjan annaði ekki eftirspurninni. Stykkið kostaði 1,25 Bandaríkjadali, eða 137 krónur.
Nú hefur Costco stefnt Acushnet sem framleiðir Titleist golfkúlur og krefst viðurkenningar á því að Costco hafi hvorki brotið á hugverkarétti Acushnet né verið með villandi auglýsingar. Í stefnunni segir að viðurkenningin sé nauðsynleg í ljósi ásakana Acushnet sem komu fram í bréfi fyrirtækisins til Costco.
Auglýsingarnar sem Acushnet taldi villandi sögðu að gæðin í golfkúlum Costco væru jafn mikil eða meiri en í golfkúlum landsþekktra vörumerkja. Í stefnunni vísar Costco til þess að þetta hafi komið fram í umsögn ýmissa fagaðila um vöruna.
Þá telur Acushnet að golfkúlur Costco séu of líkar Tilleist-kúlunum í lögun og ýmsum smáatriðum. Costco neitar þessu alfarið.