Reynir forstöðumaður hjá Opnum kerfum

Reynir Stefánsson.
Reynir Stefánsson.

Reynir Stefánsson hefur tekið við starfi forstöðumanns viðskiptastýringar hjá Opnum Kerfum en hann hóf störf hjá fyrirtækinu 2015 á sviði hýsingar, ráðgjafar og fyrirtækjalausna og er m.a. ábyrgur fyrir uppbyggingu á erlendum mörkuðum.

Reynir hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum undanfarin 20 ár sem framkvæmdastjóri hjá Símalandi og Rekstarstjóri hjá EJS. Frá 2010 starfaði Reynir hjá Advania sem forstöðumaður hýsingar og reksturs og síðar sem sölustjóri á hýsingu-, rekstri- og skýjalausnum.

Opin Kerfi hefur starfað frá 1985 og er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í ráðgjöf og innleiðingu rekstrar-, skýja- og hýsingarlausna ásamt sölu á tölvu- og samskiptabúnaði. Í dag starfa um 100 manns hjá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK