Leigubílaþjónustan Uber ætlar að hætta starfsemi í Danmörku frá og með 18. apríl vegna frumvarps er skyldar leigubíla til að vera með gjaldmæla og skynjara í sætum. Frumvarpið var lagt fyrir danska þingið í síðusta mánuði.
Hefðbundnir danskir leigubílar eru þegar búnir þessum búnaði en bílstjórar á vegum Uber hafa hins vegar notað snjallsíma sem gjaldmæla. Það má ekki samkvæmt framvarpinu.
Uber hafði áður sagst ætla að halda starfseminni í Danmörku áfram og berjast gegn frumvarpinu. Telja því sumir að fyrirtækið ætli í raun ekki að hverfa frá heldur sé það einungis að beita löggjafann þrýstingi með þessari yfirlýsingu.
Í samtali við Tech Crunch segir talsmaður Uber að breytingar á frumvarpinu séu nauðsynlegar til þess að Uber geti starfað áfram í Danmörku.
Um tvö þúsund bílstjórar starfa á vegum Uber í Danmörku og um þrjú hundruð þúsund manns eru með Uber-appið í símanum sínum. Þá starfa um fjörtíu verkfræðingar fyrir Uber í Árósum.