Trip Creator safnar 220 milljónum

TripCreator hannar hugbúnað til að útbúa sérhannaða ferðaáætlun fyrir ferðamenn.
TripCreator hannar hugbúnað til að útbúa sérhannaða ferðaáætlun fyrir ferðamenn. Skjáskot af vefsíðu TripCreator

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Trip Creator safnaði nýlega tveimur milljón Bandaríkjadölum í aukna fjárfestingu, eða sem nemur 223 milljónum króna. Fjármagnið á að nota til að brúa bilið fram að stærri fjármögnun sem stefnt er að í haust, en fyrirtækið hefur undanfarið unnið að því að þróa hugbúnað sem finnur áhugaverða staði fyrir ferðamenn og býr til sérsniðna dagskrá eftir þörfum og áhuga hvers og eins.

Upphaflega var hugmyndin að beina hugbúnaðarlausninni að ferðamönnunum sjálfum, en Bragi Þór Antoníusson, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir að fljótlega hafi þeir komist að því að betra væri að nota krafta fyrirtækisins í hugbúnaðarþróunina eingöngu og leyfa sérhæfðum ferðaskrifstofum um að sjá um söluna á ferðum.

Nú stefni meðal annars í að Icelandair taki kerfið upp til að leyfa viðskiptavinum sínum að skipuleggja ferðir á eigin vegum hér á landi. Þá segir Bragi að búið sé að skrifa undir samninga við erlendar ferðaskrifstofur um notkun á búnaðinum, en fyrir liggi þó flókin innleiðingarferli sem muni taka einhvern tíma.

Þjónusta Trip Creator var upphaflega miðuð við að skipuleggja ferðir hér á landi og var byggður upp gagnagrunnur um áhugaverða áfangastaði og þjónustu. Bragi segir að með því að nýta sér gagnagrunna Google places hafi fyrirtækið getað tekið stórt skref með að útvíkka starfsemi sína og nú bjóðist hún jafnt innanlands sem erlendis.

Fjárfestarnir sem leggja félaginu til fjármuni núna eru núverandi eigendur, en Bragi segir að stefnt sé að því að fá fleiri fjárfesta að í haust þegar fara eigi í stærri fjármögnun.

Hjá fyrirtækinu starfa í dag 18 starfsmenn. Framkvæmdastjóri þess er Hilmar Halldórsson og stjórnarformaður er Baldvin Björn Haraldsson.Fyrirtækið var stofnað af Hilm­ari og fjöl­skyldu í janú­ar 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK