Heildstæður svipur er nú að komast á bensínstöð Costco sem er við Kauptún í Garðabæ. Þá er verið að gera vöruhús verslunarinnar klárt en hún verður opnuð að morgni þriðjudagsins 23. maí.
Allar framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun, bæði við vöruhús og bensínstöðina sem er með sjálfsafgreiðslu.
Haft hefur verið eftir forsvarsmönnum Costco að þeim þyki viðtökur Íslendinga vera góðar, samanber fjölda umsókna um viðskiptakort en handhafar þeirra hafa einir rétt til innkaupa hjá fyrirtækinu.