Hilmar til Landsnets

Hilmar er menntaður rafmagnsverkfræðingur frá Hí og hefur starfað við …
Hilmar er menntaður rafmagnsverkfræðingur frá Hí og hefur starfað við upplýsingatækni og stjórnun í yfir tuttugu ár nú síðast sem forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Arion Banka.

Landsnet hefur ráðið Hilmar Karlsson í starf forstöðumanns upplýsingatækni þar sem hann mun stýra uppbyggingu og þróun á upplýsingakerfum Landsnets.

Hilmar er menntaður rafmagnsverkfræðingur frá Hí og hefur starfað við upplýsingatækni og stjórnun í yfir tuttugu ár nú síðast sem forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Arion Banka.

„Það er spennandi að vera orðinn hluti af því neti sem Landsnet er og fá tækifæri til að taka þátt í þeim fjölmörgu verkefnum er þar eru. Hjá Landsneti ríkir metnaður og vilji til að gera vel og ég er fullur tilhlökkunar að leggja mitt að mörkum til að gera gott fyrirtæki enn betra,“ er haft eftir Hilmari í fréttatilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK