Guðmundur keppir við Airbnb

„Ask Guðmundur“ vann fern gullverðlaun á Euro Effie-hátíðinni auk Grand …
„Ask Guðmundur“ vann fern gullverðlaun á Euro Effie-hátíðinni auk Grand prix-verðlauna.

Íslenska auglýsingastofan hefur hlotið tvær Effie-verðlaunatilnefningar fyrir „Ask Guðmundur“-herferðina, sem er hluti af Inspired by Iceland-herferð Íslandsstofu. Íslenska auglýsingastofan er fyrst íslenskra auglýsingastofa til að hljóta tilnefningu til þessara mikilvægu árangursverðlauna í keppninni í Norður-Ameríku en keppnin er haldin þar og í Evrópu ár hvert.

Íslenska auglýsingastofan er tilnefnd í tveimur flokkum, annars vegar fyrir Travel & Tourism, þar sem hún etur kappi við Airbnb, og hins vegar David vs Goliath, en það er fyrir markaðssetningu í umhverfi þar sem samkeppni við stærri fyrirtæki og  vörumerki er mikil.

Herferðin er orðin ein verðlaunaðasta ferðaþjónustuherferð heims og vann til að mynda nýverið fern gullverðlaun á evrópsku Effie-hátíðinni, Grand Prix-verðlaunin og Lúðurinn fyrir herferð ársins og stafrænar auglýsingar.  Inspired by Iceland hefur í heild unnið yfir 20 gull- og Grand Prix-verðlaun á síðustu fimm árum og eru þá ótalin ýmis önnur verðlaun sem hún hefur hlotið.

Ask Guðmundur, The Human Search Engine, er samfélagsmiðladrifin herferð sem gerir notendum kleift að spyrja ólíka Íslendinga, sem allir bera nafnið Guðmundur eða Guðmunda, um Ísland, hefðir, náttúru og menningu. Sumum spurningum er svarað með sérstökum myndböndum sem dreift er á samfélagsmiðlum og má sjá þau á YouTube-rás Inspired by Iceland. Herferðin sem Íslenska auglýsingastofan hefur unnið í góðu samstarfi við The Brooklyn Brothers í London og útfærsla hennar byggir á samstarfi opinberra aðila og íslenskrar ferðaþjónustu og er Íslandsstofa framkvæmdaraðili.

Effie-verðlaunin, sem sett voru á fót árið 1968, eru ein virtustu auglýsingaverðlaun heimsins og eru dómnefndir skipaðar fagfólki með umfangsmikla markaðs- og auglýsingareynslu.

Sérstaða Effie-verðlaunanna felst ekki síst í því að þau verðlauna árangur herferða, ekki einungis útlit. North American Effie-verðlaunin verða afhent 1. júní í New York í Bandaríkjunum en hér má sjá lista yfir tilnefningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK