Forstjóri Kviku lætur af störfum

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku.

Sigurður Atli Jónsson forstjóri Kviku hefur tilkynnt stjórn bankans ákvörðun sína um að láta af störfum. Í samtali við mbl segir Sigurður ekkert liggja fyrir um framhaldið. Vill hann þó ekki tjá sig nánar um málið og vísar í tilkynningu frá stjórn bankans.

Sigurður Atli hefur verið forstjóri Kviku frá 1. júlí 2011, en bankinn hét þá MP banki. Sigurður Atli leiddi síðan samruna MP banka og Straums árið 2015 þannig að úr varð nýr fjárfestingabanki undir nafni Kviku.

Í tilkynningu frá stjórn Kviku er haft eftir Sigurði að nú sé rétti tíminn til að gera breytingar. „Það er ánægjulegt hve vel hefur tekist til að búa til nýjan íslenskan banka. Þróun hans hefur tekist einstaklega vel. Einstakur árangur bankans grundvallast á skýrri framtíðarsýn um að vera sjálfstæður og sérhæfður fjárfestingabanki, samþættri stefnulegri áætlun, skipulegri uppbyggingu fyrirtækjamenningar og umfram allt frábæru starfsfólki,“ er haft eftir Sigurði.

Gengur stoltur frá verki

„Það er ljóst að þetta verkefni hefur tekist einstaklega vel og framtíð bankans er afar björt. Ársuppgjör Kviku í fyrra og afkoman núna á fyrsta fjórðungi eru til vitnis um það. Slíkar niðurstöður gera mig óneitanlega stoltan sem forstjóra og leiðtoga þessa góða hóps fólks sem ég hef haft ánægju af að starfa með. Ég vil þakka frábærum viðskiptavinum og fyrirtækjum í klasasamfélagi Kviku fyrir góð samskipti og gott samstarf.“

„Skýr markmið varpa ljósi á tækifærin. Núna er rétti tíminn fyrir mig til að gera breytingar. Ég óska starfsfólki Kviku, stjórn og hluthöfum allra heilla í framtíðinni,“ er haft eftir Sigurði Atla.

Afkoma Kviku árið 2016 nam 2 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7%. Hagnaður Kviku á fyrstu þremur mánuðum þessa árs er um 400 milljónir króna.

Í tilkynningu segir að stjórn Kviku sjái á eftir Sigurði Atla og þakki honum fyrir vel unnin störf í þágu hluthafa, viðskiptavina og starfsfólks Kviku.„ Stjórn metur mikils forystu hans í að gera Kviku að traustum og öflugum fjárfestingabanka í fremstu röð og þakkar honum traust og heilsteypt samstarf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK