Loka þurfti öllum þrettán verslunum Hagkaups í tæpar tvær klukkustundir eftir hádegi í dag vegna bilunar í kassakerfi. Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri segir vöruskrána hafa horfið úr kassakerfinu þegar uppfærsla stóð yfir. Þar af leiðandi var ekki hægt að afgreiða neinn. „Ef kassarnir virka ekki erum við í slæmum málum,“ segir Gunnar.
Verið er að skipta um tölvukerfi í verslunum fyrirtækisins.
Gunnar segir viðskiptavini hafa sýnt þessu fullan skilning og komið aftur þegar verslanir voru opnaðar á nýjan leik. „Það eru allir á lífi en þetta var mjög skrýtið,“ segir Gunnar og bætir við að ekki hafi áður þurft að grípa til viðlíka ráðstafana og að loka öllum verslunum. „Þetta sýnir bara hvað maður er háður tækninni.“