Gunnar og Bjarki til Virðingar

Gunnar Sigurðsson.
Gunnar Sigurðsson.

Gunnar Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Virðingar hf., en Gunnar hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2015. Þá hefur Bjarki Logason verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, en hann hefur starfað hjá Virðingu og áður Auði Capital frá árinu 2009.

„Gunnar stýrir skrifstofu okkar í Lundúnum og verður skrifstofan þar nú færð stjórnunarlega undir fyrirtækjaráðgjöfina. Gunnar hefur aðstöðu í báðum löndum en hann og Bjarki munu sameiginlega stýra rekstri einingarinnar,“ er haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfssyni, forstjóra Virðingar, í tilkynningu.

Gunnar hefur viðamikla reynslu af fjármálamörkuðum. Hann starfaði á árunum 2004 – 2015 í Bretlandi, fyrsti hjá Baugi Group og síðar sem ráðgjafi, t.d. fyrir skilanefnd Landsbankans varðandi eignir bankans í Bretlandi. Áður en hann tók við skrifstofu Virðingar í Lundúnum var hann á framtakssjóðasviði fyrirtækisins og sat í ýmsum stjórnum.

Bjarki Logason.
Bjarki Logason.

Bjarki hefur undanfarin ár komið að öllum stærri verkefnum fyrirtækjaráðgjafar félagsins og býr að viðamikilli reynslu sem mun nýtast í nýju starfi. „Verkefnastaða Virðingar í Lundúnum hefur aukist jafnt og þétt frá því að skrifstofan opnaði og samvinna við fyrirtækjaráðgjöf Virðingar hér heima aukist stöðugt. Það er því rökrétt skref að efla fyrirtækjaráðgjöfina með þessum hætti og fram undan er enn frekari styrking á þessu sviði,“ er haft eftir Hannesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK