Fækkun í sjávarútvegi en fjölgun í byggingariðnaði

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Launþegum hefur fjölgað mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu undanfarið ár en þeim hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Á 12 mánaða tímabili, frá apríl 2016 til mars 2017, voru að jafnaði 16.970 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 754 (4,7%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 181.900 einstaklingum laun sem er fjölgun um 8.300 (4,8%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Í mars voru 2.368 launagreiðendur og um 10.900 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.200 eða um 13% frá því í mars 2016. Sömuleiðis voru í mars 1.547 launagreiðendur og um 24.000 launþegar í einkennandi greinum  ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.800 eða um 13% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 5.900 eða um 3%.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK