Ná ekki í eiganda pantadu.is

Eigandi síðunnar sér um að panta vörur sem fást í …
Eigandi síðunnar sér um að panta vörur sem fást í Bandaríkjunum fyrir aðra. Skjáskot af vefsíðu pantadu.is

Neytendastofu hafa borist fjölmargra kvartanir og ábendingar frá neytendum um að þeir nái ekki í forsvarsmenn vefsíðunnar pantadu.is. Við skoðun Neytendastofu á síðunni kom í ljós að nauðsynlegar upplýsingar um þjónustuveitanda komu ekki fram. Stofnunin vakti athygli forsvarsmanns vefsíðunnar á þessu og fór fram á að upplýsingagjöfin yrði bætt.

Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir og leiðbeiningar stofnunarinnar voru upplýsingar á heimasíðunni hins vegar ekki lagaðar. Með ákvörðun Neytendastofu hefur vefversluninni fjórtán daga til að lagfæra upplýsingar um þjónustuveitanda. Ef það verður ekki búið að gera lagfæringar á vefsíðunni pantadu.is innan tilskilins tíma verður forsvarsmanni vefverslunarinnar gert að greiða dagsektir er hljóða upp á 20 þúsund krónur á dag þar til farið hefur verið að ákvörðun Neytendastofu.

Hér má lesa ákvörðun Neytendastofu í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK