Orðinn einn stærsti Subway landsins

Staðurinn í Reykjanesbæ var tvöfaldaður.
Staðurinn í Reykjanesbæ var tvöfaldaður. Mynd/Subway

Subway Fitjum í Reykjanesbæ hefur verið opnað að nýju eftir miklar og gagngerar endurbætur og stækkun. Veitingastaðurinn var rúmlega tvöfaldaður og er nú 180 fermetrar og rúmar 65 manns í sæti.

Er Subway á Fitjum nú orðinn einn af stærstu Subway stöðum landsins. Í tilkynningu er haft eftir Fríðu Ásgeirsdóttur, markaðsstjóra fyrirtækisins, að staðurinn hafi verið stækkaður til að mæta aukinni aðsókn sem fylgt hefur straumi ferðamanna til landsins. Staðurinn verður opinn allan sólarhringinn.

Subway mun að næstunni opna nýjan veitingastað á Laugaveginum. Þá verða staðirnir orðnir 24.

Aukin aðsókn hefur fylgt straumi ferðamanna.
Aukin aðsókn hefur fylgt straumi ferðamanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK