Vona að hækkun á áli sé varanleg

Niðurstaða rekstrarins var svipuð og undanfarin ár en hækkað mat …
Niðurstaða rekstrarins var svipuð og undanfarin ár en hækkað mat á verðmæti raforkusölusamninga til langs tíma sem tengdir eru álverði skapaði fyrirtækinu hins vegar mikinn bókfærðan hagnað, en hækkunin nam 5,3 milljörðum króna. mbl.is/Styrmir Kári

Afkoma Orkuveitunnar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 6,039 milljörðum króna miðað við 2,5 milljarða á sama tíma í fyrra. Niðurstaða rekstrarins var svipuð og undanfarin ár en hækkað mat á verðmæti raforkusölusamninga til langs tíma sem tengdir eru álverði skapaði fyrirtækinu hins vegar mikinn bókfærðan hagnað, en hækkunin nam 5,3 milljörðum króna. „Þetta er fugl í skógi en ekki í hendi,“ er haft eftir Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orkuveitunnar, um mikinn bókfærðan hagnað í uppgjörinu.

Þá hækkar reiknaður tekjuskattur OR verulega milli ára og nemur 2,3 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins.

Í fréttatilkynningu er bent á að um síðustu áramót hafi verð á hluta þjónustu OR-samstæðunnar lækkað. Tekjur samstæðunnar fyrstu þrjá mánuði ársins 2017 jukust frá sama tímabili 2016 um 487 milljónir króna, þrátt fyrir lækkun á gjaldi fyrir rafmagnsdreifingu og kalt vatn um áramótin. Mestu munar um auknar tekjur Orku náttúrunnar. Rekstarkostnaður samstæðunnar jókst um 59 milljónir á sama tíma.

„Lykilatriði í þessu uppgjöri er að rekstrarkostnaður vex óverulega. Með því eigum við betur með að halda verði fyrir þjónustuna niðri og greiða eigendum sanngjarnan arð. Sú mikla tekjufærsla sem gerð er vegna hækkunar á álverði fyrstu mánuði ársins og skilar miklum hagnaði á tímabilinu er fugl í skógi en ekki í hendi. Þessir peningar eru langt í frá komnir í kassann. Við vonumst auðvitað til að hækkun á áli sé varanleg og að raforkusala til stórnotenda skili auknum tekjum. Sú þróun er hins vegar ekki í okkar höndum. Við hjá OR og dótturfélögunum einbeitum okkur að því mikilvæga hlutverki sem okkur hefur verið falið og viljum sinna af trúmennsku og hagsýni,“ er haft eftir Bjarna í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK