Íhuga að selja hlut sinn í Bláa lóninu

HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi.
HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

HS Orka hyggst kanna mögulega sölu á 30% hlut sínum í Bláa lóninu í heild eða að hluta. Er það gert í kjölfarið á sýndum áhuga á hlut félagsins. HS Orka hefur falið Stöplum Advisory að ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra ferlinu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa lónið er nú með umfangsmikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa lónsins ekki að kjarnastarfsemi HS Orku sem er framleiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku. 

HS Orka á eins og fyrr segir 30% hlut í Bláa lóninu. Ásgeir situr í stjórn Bláa lónsins ásamt stjórnarmanni í HS Orku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK