Seðlabankinn lækkar stýrivexti

Stýrivextir verða nú 4,75%
Stýrivextir verða nú 4,75% mbl.is/Ómar Óskarsson

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands hef­ur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur, sem þýðir að stýrivextir bankans fara úr 5% niður í 4,75%.

Í fréttatilkynningu bankans segir að horfur séu á hröðum hagvexti í ár eins og í fyrra og bæði árin umfram það sem spáð var í febrúar. Frávikið skýrist einkum af meiri vexti ferðaþjónustu en áður var búist við en að auki er útlit fyrir meiri slökun í aðhaldi opinberra fjármála í ár.

Því hafi spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúskapnum í heild aukist þrátt fyrir aukinn innflutning vinnuafls og kröftugan framleiðnivöxt. Á móti aukinni spennu vegi hins vegar hækkun gengis krónunnar. „Hún hefur gegnt lykilhlutverki í aðlögun þjóðarbúsins að búhnykkjum sem rekja má til betri viðskiptakjara og vaxtar ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningunni.

Skýr merki um aukna spennu í þjóðarbúskapnum kalli á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Raunvextir bankans hafi hækkað lítillega frá síðasta fundi peningastefnunefndar og þá feli gengishækkun krónunnar einnig í sér aukið aðhald.

Hag­fræðideild Lands­bank­ans spáði lækkun stýrivaxta og taldi líklegt að peningastefnunefnd myndi lækka stýrivexti um 0,25%. Taldi hag­fræðideild­ bankans  að lág verðbólga síðustu ár, stöðugar verðbólgu­vænt­ing­ar ná­lægt mark­miði, veru­leg verðhjöðnun verðlags án hús­næðis­kostnaðar ásamt lækk­un jafn­væg­is­raun­stýri­vaxta gæfi pen­inga­stefnu­nefnd­inni fullt til­efni til að fikra sig áfram í lækk­un stýri­vaxta.

Klukk­an 10:00, hófst svo vefút­send­ing þar sem gerð var frek­ari grein fyr­ir ákvörðun pen­ingastefnu­nefnd­ar. Þar munu Már Guðmunds­son, seðlabanka­stjóri og formaður pen­inga­stefnu­nefnd­ar, og Þórarinn G. Pétursson, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabankanum sem einnig situr í peningastefnunefndar, gera grein fyr­ir rök­um pen­inga­stefnu­nefnd­ar fyr­ir ákvörðun sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK