Tómar umbúðir ekki rusl

Erik Lindroth á fundinum í morgun.
Erik Lindroth á fundinum í morgun. Ljósmynd/Aðsend

„Neytendur þurfa að vera meðvitaðir um að tómar umbúðir eru ekki rusl heldur efniviður til að framleiða nýjar umbúðir,“ sagði Erik Lindroth, umhverfisstjóri Tetra Pak í Norður-Evrópu, í fyrirlestri sínum á fundi Festu og Reykjavíkurborgar um umbúðir og endurvinnslu í morgun, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá MS.

Fjallað var um á fundinum hvernig umbúðir og pakkningar séu hluti af virðiskeðju í matvæla- og vöruframleiðslu og hvernig framleiðendur, smásalar og neytendur geti lágmarkað umhverfissporin sín.

Erik sagði að með því að skila fernum til endurvinnslu verði til efniviður til að búa til pítsu-, morgunverðar- og kexkassa auk fleiri ytri umbúða.

Samkvæmt rannsóknum Tetra Pak er hægt að skipta neytendum í sex hópa eftir því hversu umhverfisvænir þeir eru. Árið 2011 voru um 45% neytenda á Norðurlöndunum meðvitaðir um umhverfismál en fjórum árum síðar var hlutfallið komið í 67%. Neytendur eru því sífellt að verða meira meðvitaðir um þessi mál, samkvæmt tilkynningunni.

Þá ræddi Erik um að það skipti máli hvaða efniviður væri notaður í umbúðir, hvernig þær eru fluttar á milli staða og hvað verður um umbúðirnar eftir notkun. Nýjar fernur Tetra Pak, sem MS hefur nú tekið í notkun fyrir sínar vörur, hafa minni áhrif á umhverfið en áður. Framleiðslan á nýju fernunum með endurnýjanlegu plasti í innra byrði og í tappa, sem er unnið úr plöntum en ekki olíu, losar minna af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið en framleiðslan á hefðbundnum fernum.

MS er fyrsti viðskiptavinur Tetra Pak í heiminum sem færir allar sínar mjólkurfernur í nýjar og umhverfisvænni umbúðir.

Meðal framsögumanna voru, auk Erik Lindroth, Snjólaug Ólafsdóttir, umhverfisverkfræðingur hjá Andrými, og Oddný Anna Björnsdóttir, verkefnastjóri umhverfis-, samfélags- og lýðheilsumála hjá Krónunni. Fundarstjóri var Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK