Hefja viðræður um kaup Skeljungs á 10-11

Basko fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu ellefu ehf., Ísland …
Basko fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu ellefu ehf., Ísland verslun hf. og Imtex ehf. Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. rekur samtals 35 þægindavöruverslanir undir merkjum 10-11 og Háskólabúðarinnar og er einnig móðurfélag Drangaskers ehf. sem rekur fimm kaffihús undir merkjum Dunkin Donuts. mbl.is/Hjörtur

Skeljungur hf. og hluthafar Basko ehf. hafa sammælst um að hefja samningaviðræður um kaup Skeljungs á öllu hlutafé í Basko, á grundvelli samkomulags um helstu samningsskilmála en Basko á m.a. 10-11.

Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljungs til Kauphallarinnar. Þar segir að kaupin séu háð ýmsum forsendum og fyrirvörum beggja samningsaðila.

Basko fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu ellefu ehf., Ísland verslun hf. og Imtex ehf. Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. rekur samtals 35 þægindavöruverslanir undir merkjum 10-11 og Háskólabúðarinnar og er einnig móðurfélag Drangaskers ehf. sem rekur fimm kaffihús undir merkjum Dunkin Donuts. Félagið rekur einnig eina Inspired by Iceland-verslun og veitingastaðinn Bad Boys Burgers & Grill. Ísland verslun hf. rekur þrjár verslanir undir merkjum Iceland. Heildartekjur samstæðunnar á síðasta fjárhagsári námu rúmum 10 milljörðum króna, heildareignir 2,3 milljörðum og rekstrarhagnaður án afskrifta og fjármagnsliða (EBITDA) nam 309 milljónum króna.

Kaupverð allt að 2,2 milljarðar króna

Í tilkynningunni segir að forsendur um kaupverð séu grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að EBITDA hins keypta geti numið um 500 milljónum króna á ársgrundvelli, þegar samlegðaráhrif félaganna yrðu að fullu komin fram. Áætlað er að það geti verið innan 24 mánaða frá því að kaupin eru gengin í gegn.

Kaupverð miðað við framangreindar forsendur væri allt að 2,2 milljarðar króna, greitt að fullu með 318.840.580 hlutum í Skeljungi hf.

„Miðað er við nettó vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 657 milljónir króna, sem getur þó tekið breytingum. Við útreikning á fjölda hluta er miðað við gengið 6,9 á hlut.  Dagslokagengi Skeljungs hf. 19. maí 2017 var 6,35. Seljendur skuldbinda sig til að framselja ekki þá hluti sem þeir fá afhenta í 18 mánuði frá afhendingu,“ segir í tilkynningunni en jafnframt segir að framangreint kaupverð sé háð ýmsum forsendum, þar á meðal að áætlaður rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar.

„Komi til  gerðar kaupsamnings verður sá samningur gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á og ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupum fyrir árslok 2017,“ segir í tilkynningunni.

Stígur mikilvægt skref í frekari þróun á smásölu

„Árið 2014 samdi Skeljungur við Basko um rekstur verslana á helstu bensínstöðvum félagsins. Það hefur gengið vonum framar og á grunni þeirrar reynslu stígur félagið nú skrefið til fulls með kaupum á félaginu, með fulla samþættingu á eldsneytissölu, sölu á endurnýjanlegum orkugjöfum og verslun fyrir augum.

Með kaupunum stígur Skeljungur jafnframt mikilvæg skref í frekari þróun í smásölu, sem m.a. felst í að mæta betur breytingum á kaupmynstri fólks – og sívaxandi tækifærum í sölu og þjónustu til ferðamanna, þar sem 10-11 hefur þegar sterka stöðu. Samhliða þessu hyggst félagið jafnframt leita tækifæra til að styrkja sölu- og þjónustunet sitt um allt land. Með kaupunum myndi Skeljungur eignast eitt öflugasta þægindaverslanafyrirtæki landsins, en stjórnendur félagsins hafa áralanga reynslu í uppbyggingu og rekstri smásöluverslana. Heildarfjöldi starfsmanna sameinaðs félags yrði rúmlega 400 manns.

Eftir kaupin verður félagið byggt á fjórum meginsviðum, þ.e. smásölu, sölu til stórnotenda, eldsneytissölu til erlendra skipa og starfsemi í Færeyjum (Magn),“ er haft eftir Valgeiri M. Baldurssyni, forstjóra Skeljungs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK