Launavísitalan hækkaði um 0,2% í apríl frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,9%.
Minni 12 mánaða breyting í apríl 2016 en í apríl 2017 skýrist meðal annars af því að engar kjarasamningshækkanir voru á tímabilinu maí 2016 til apríl 2017 hjá stórum hluta starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Í 12 mánaða breytingu vísitölunnar í apríl 2016 gætti hins vegar áhrifa tveggja kjarasamningshækkana hjá þessum hópi.
Kaupmáttur launa minnkaði um 0,3% í apríl frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,9%, segir í frétt Hagstofu Íslands.