Fjölmenni við opnun Costco

Röðin fyrir utan verslunina á níunda tímanum í morgun.
Röðin fyrir utan verslunina á níunda tímanum í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjölmenni var komið saman við verslun Costco í Kauptúní Garðabæ, en verslunin opnaði í dag. Margir hafa beðið eftir komu verslunarinnar með eftirvæntingu og hafa um 40.000 manns gerst meðlimir fyrirtækisins. Fylgst var með opnuninni í beinni útsendingu á mbl.is.

Þrjú ár eru liðin frá því þegar viðskiptablað Morgunblaðsins greindi frá því að Costco hefði áhuga á því að opna verslun á Íslandi, eða í mars 2014. Í desember sama ár var greint frá því að Costco myndi opna verslun í Kauptúni í Garðabæ. Í fyrstu var stefnt að því að opna verslunina árið 2016 en framkvæmdir hófust ekki fyrr en í ágúst í fyrra og þá var stefnt að opnun í mars á þessu ári. Hún frestaðist hins vegar um tvo mánuði og endanleg dagsetning varð 23. maí 2017.

Costco.
Costco. mbl.is/Hjörtur
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK