Spennt að sjá hvað er þarna inni

Eunice hefur komið einu sinni í Costco í Bandaríkjunum og …
Eunice hefur komið einu sinni í Costco í Bandaríkjunum og líkaði vel. mbl.is/Auður

„Ég er spennt að sjá hvað er þarna inni. Ég er meðal annars að leita mér að góðum ísskáp,“ segir Eunice í samtali við mbl.is um tuttugu mínútum fyrir opnun Costco. Hún mætti á svæðið ásamt vinkonum sínum um sjöleytið í morgun en fór ekki í röðina fyrr en um hálfníuleytið og biðu þær í bílum sínum.

Hún hefur einu sinni komið inn í Costco-verslun í Bandaríkjunum og var mjög hrifin. Hún heldur að koma Costco verði góð fyrir íslenska markaðinn. „En þeir verða að fá að selja áfengi líka, það er það sem vantar á íslenskan markað. Það er ekki af því að ég drekk svo mikið en Ísland er eina landið sem er ekki með áfengi í matvöruverslunum. Það væri mjög gott fyrir Íslendinga að fá áfengi í matvöruverslanir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK