Farþegum WOW air fjölgaði um 178%

Það sem af er ári hefur WOW air flutt um …
Það sem af er ári hefur WOW air flutt um 752 þúsund farþega en það er 178% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður. Ljósmynd/WOW air

WOW air flutti 218 þúsund farþega til og frá landinu í apríl eða um 173% fleiri farþega en í apríl árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 88,2% í apríl í ár sem er nálægt tveggja prósentustiga aukning á milli ára. Sætanýtingin jókst þrátt fyrir 243% aukningu á framboðnum sætakílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en það sem af er ári hefur WOW air flutt um 752 þúsund farþega en það er 178% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air flýgur nú til 32 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og nýlega bættist Asía við en frá og með haustinu verður flogið til Tel Aviv fjórum sinnum í viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK