Hagnaður Ölgerðarinnar jókst um 18%

Hagnaður Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. eftir skatta fyrir fjárhagsárið 01.03. 2016 – 28.02. 2017 jókst um 18% milli ára, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Á sama tíma lækkaði Ölgerðin verð á innfluttum vörum í fjórgang vegna styrkingu krónunnar og velta jókst um 16% á sama tímabili.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ölgerðnni.

Þá var EBITDA fyrirtækisins rétt um tveir milljarðar króna. Hagnaður Ölgerðarinnar nam um  3,3% af veltu og nettó vaxtaberandi skuldir voru tæpir 7 milljarðar króna. Eigið fé Ölgerðarinnar var um 2,8 milljarðar króna eða um 19% eiginfjárhlutfall.

„Við er afar stolt af þessum árangri á nýliðinu rekstrarári. Við erum með ársveltu upp á 24 milljarða króna og jukum veltu um 16% milli ára. Styrking íslensku krónunnar skilaði sér til viðskiptavina okkar, enda lækkuðum við verð innfluttra vara fjórum sinnum á árinu en náðum samt að auka hagnaðinn. Þennan góða árangur má fyrst og fremst rekja til aukinnar markaðshlutdeildar og framúrskarandi starfsfólks,“ er haft eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar.

„Við höfum undirritað samning um kaup á fasteignunum að Grjóthálsi 7 – 11, þar sem meginstarfsemi okkar fer fram. Samhliða því hækkuðum við hlutafé um 1,6 milljarða króna og lækkuðum m.a. skuldir rekstrarfélagsins,“ er haft eftir Andra Þór.

„Við teljum mikilvægt að eiga þessar fasteignir

Meginstarfsemi Ölgerðarinnar fer fram að Grjóthálsi 7 – 10 en seljandinn er Nitur ehf.

Fasteignirnar að Grjóthálsi 7-11 eru um 20 þúsund fermetrar að stærð og skiptast í framleiðslurými, brugghús, lager og skrifstofurými. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð verður greitt annars vegar með afhendingu á hlutum í kaupanda og hins vegar með reiðufé. Ráðgjafi Ölgerðarinnar í viðskiptunum var Íslandsbanki.

„Við höfum verið að vinna að framtíðarstefnumótun fyrirtækisins og liður í því var að eignast húsnæðið að Grjóthálsi. Við teljum mikilvægt að eiga þessar fasteignir og undirrituðum því samning um kaup á öllu hlutafé Kolefnis ehf., sem átti Grjótháls 7 – 11. Ölgerðin hefur enn fastara land undir fótum með þessum kaupum,“ er haft eftir Andra.

23 hluthafar í félaginu

Starfsmannafjöldi Ölgerðarinnar jókst um 10% milli ára og voru ársverk um 420 á árinu.

Nýlega var gengið frá sölu á 69% hlut í Ölgerðinni en fyrir þeim kaupum fóru framtakssjóðirnir Horn III slhf, Akur fjárfestingar slhf auk einkafjárfesta. Í kjölfar þeirra viðskipta eru hluthafar í félaginu 23 talsins. Þeir stærstu eru OA eignarhaldsfélag, sem er í eigu Andra Þórs Guðmundssonar forstjóra Ölgerðarinnar og Októs Einarssonar stjórnarformanns félagsins, Horn III slhf., framtakssjóður í rekstri Landsbréfa, og Akur fjárfestingar slhf., framtakssjóður í rekstri Íslandssjóða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK