Kerecis er vaxtarsproti ársins

Við athöfnina í gær.
Við athöfnina í gær. Aðsend mynd

Vaxtarsproti ársins er fyrirtækið Kerecis en það jók veltu sína um 100% milli ára. Fyrirtækið fékk viðurkenningu fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári þegar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, afhenti Vaxtarsprotann í gær í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 11. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Kerecis, sem var stofnað 2009, er dæmi um vaxtarsprota sem byggst hefur upp á nokkrum árum og tekur nú flugið með auknum umsvifum á erlendri grundu en starfsmannafjöldi hefur vaxið úr 18 í 26 og útflutningur nemur yfir 91% af veltu. Kerecis er lækningavörufyrirtæki sem notar roð til að græða sár og styrkja líkamsvefi, til dæmis við endurgerð á brjóstum og til viðgerðar á kviðslitum. Fyrirtækið hefur verið að hasla sér völl í Bandaríkjunum sem er einn kröfuharðasti markaður í heimi fyrir lækningavörur. Vöxtur í sölu fyrirtækisins kemur fram þremur árum eftir að markaðsleyfi fengust fyrir fyrstu vöru fyrirtækisins sem var til meðhöndlunar á sykursýkisárum. Kerecis er með skráð einkaleyfi í Bandaríkjunum og fleiri löndum og hafa meira en 10 þúsund sjúklingar verið meðhöndlaðir með sáraroði félagins á undanförnum árum.

Hugmyndin að baki notkunar á roði til sárameðferðar kemur frá Guðmundi F. Sigurjónssyni og voru fyrstu verkefnin unnin á Ísafirði þar sem fyrirtækið er enn með aðsetur og framleiðslu en fyrirtækið er einnig með starfsemi í Reykjavík og Arlington í Virginiu í Bandaríkjunum. Læknarnir Baldur Tumi Baldursson og Hilmar Kjartansson eiga einnig stóran þátt í hugmyndinni ásamt Dóru Hlín Gísladóttur sem frá upphafi hefur séð um rekstur félagsins á Ísafirði. Kerecis vinnur að því að þróa betri meðferðarúrræði við brunasárum og njóta nokkur verkefna fyrirtækisins stuðnings varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna en brunasár eru meðal algengustu slysa og sára í hernaði. Kerecis er í eigu íslenskra, bandarískra, breskra og franskra hluthafa. Um það bil helmingur hluthafa eru upphaflegir stofnendur fyrirtækisins en aðrir hlutir eru í dreifðri eignaraðild.

 Valka velti meira en milljón

Við athöfnina í gær var einnig veitt sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækis sem á síðasta ári náði þeim áfanga að velta í fyrsta sinn meira en einum milljarði króna. Að þessu sinni hlaut fyrirtækið Valka viðurkenninguna en áður hafa CCP, Betwere, Nimblegen, Naust Marine, Nox Medical og Vaki fiskeldiskerfi náð þessum áfanga. Valka hannar og framleiðir hátæknilausnir fyrir vinnslu á fiski með það að markmiði að auka afköst, nýtingu og framleiðni í samræmi við óskir viðskiptavina sinna. Fyrirtækið var stofnað árið 2003 af Helga Hjálmarssyni verkfræðingi sem hefur frá upphafi leitt fyrirtækið og verið framkvæmdastjóri þess. Starfsmenn fyrirtækisins voru rúmlega 40 talsins um síðustu áramót og hafði þá fjölgað um um fjórðung á árinu.

Tvö önnur sprotafyrirtæki, Kvikna og TeqHire, hlutu einnig viðurkenningar fyrir vöxt í veltu. Lækningatækja- og hugbúnaðarfyrirtækið Kvikna var stofnað 2008 af Garðari Þorvarðssyni, Heiðari Einarssyni, Guðmundi Haukssyni og Hjalta Atlasyni en seinna bættist Stefán Pétursson við sem meðeigandi. Kvikna vinnur að þróun og markaðssetningu á ýmsum vörum tengdum heilalínuriti til greiningar á flogaveiki auk þess sem fyrirtækið selur rannsóknar- og þróunarvinnu til annarra fyrirtækja, bæði hérlendis og erlendis. Helstu viðskiptavinir hugbúnaðarþjónustunnar eru í Noregi og Bandaríkjunum og hefur fyrirtækið þróað ýmsan hugbúnað tengdan olíuiðnaði auk hugbúnaðar fyrir lækningatæki. Hjá Kvikna eru 22 starfsmenn og er fyrirtækið í meirihlutaeigu frumkvöðlanna en einnig er Norbit AS hluthafi.

TeqHire var stofnað árið 2013 af Kristjáni Má Gunnarssyni og Stefáni Erni Einarssyni. Síðustu fjögur ár hefur fyrirtækið sérhæft sig í ráðningum og ráðgjöf með áherslu á upplýsingatæknimarkað. Félagið stendur að þróun á mannauðsmiðaðri hugbúnaðarlausn sem meðal annars einfaldar og bætir ráðningarferla þekkingarstarfsfólks. Frá stofnun hafa tæplega 50 íslensk fyrirtæki og fjölmörg erlend fyrirtæki nýtt sér þjónustu TeqHire, allt frá sprotum í hröðum vexti til rótgróinna upplýsingatæknifyrirtækja. Ráðningarstarfsemi fyrirtækisins á Íslandi er í höndum Kristjáns Péturs Sæmundssonar og Kathryn Gunnarsson. Þeim til viðbótar starfa að jafnaði um 8-10 starfsmenn og verktakar við ráðgjöf, ráðningar og hugbúnaðargerð. 

Dómnefndina skipa Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís, Páll Kr. Pálsson fyrir Háskólann í Reykjavík og Davíð Lúðvíksson fyrir Samtök iðnaðarins en hann er jafnframt formaður nefndarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK