Vodafone fagnar flýtimeðferð

Vodafone á Íslandi fagnar flýtimeðferð stjórnvalda á nýsamþykktri reglugerð Evrópusambandsins um afnám reikigjalda sem tryggir innleiðingu reglugerðarinnar frá því hún tekur gildi 15. júní næstkomandi fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone.

„Viðskiptavinir fyrirtækisins njóta þannig ávinningsins um leið og aðrir íbúar Evrópu og geta notað símtæki sín í Evrópu eins og hér heima, á það bæði við um farsíma- og netáskriftir,“ segir í tilkynningunni.

„Síðustu mánuði hefur Vodafone á Íslandi unnið náið að undirbúningi innleiðingarinnar í samstarfi við Vodafone Group sem starfar um alla Evrópu en samstarfið tryggir að viðskiptavinir Vodafone á Íslandi fá sambærilega útfærslu á „Roam like home“ á ferðalögum sínum og gerist á öðrum Evrópumörkuðum. Vodafone tryggir hágæða 4G samband í yfir 40 löndum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK