Hugmyndirnar „stórkostlega gallaðar“

„Hugmyndir markaðsráðsins um útflutningsskyldu, sem lögð verði á sláturleyfishafa, eru …
„Hugmyndir markaðsráðsins um útflutningsskyldu, sem lögð verði á sláturleyfishafa, eru stórkostlega gallaðar og ólögmætar. Þær munu eingöngu skaða hagsmuni neytenda,'' segir í bréfi FA. mbl.is/Jim Smart

Félag atvinnurekenda leggst gegn því að Markaðsráði kindakjöts verði veitt undanþága frá samkeppnislögum til að efna til samstarfs sláturleyfishafa um útflutning á lambakjöti. Segir félagið hugmyndirnar stórkostlega gallaðar og ólögmætar og muni aðeins skaða hagsmuni neytenda.

Greint er frá þessu á vef FA.

FA hefur sent Samkeppniseftirlitinu svar við umsagnarbeiðni um málið þar sem bent er á að ávinningur neytenda af samstarfinu sé enginn, þvert á móti sé það þeim til tjóns vegna þess að verði sé haldið uppi. Skilyrði fyrir beitingu 15. greinar samkeppnislaga séu því ekki uppfyllt.

Í beiðni Markaðsráðs kindakjöts um undanþágu kemur fram að gert er ráð fyrir að samstarf sláturleyfishafa feli í sér að þeir skuldbindi sig til að flytja út 35% af framleiðslu sinni. Þá greiði þeir Markaðsráðinu útflutningsgjald ef þeir standi ekki við þá skuldbindingu.

Í bréfi FA til Samkeppniseftirlitsins er bent á að í raun sé ekkert skilyrða 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 uppfyllt til að hægt sé að fallast á undanþágu frá bannreglu 10. gr. laganna. „Einhvers konar samstarf um markaðssetningu kann að vera lögmætt og má í því samhengi vísa til þess ágæta starfs sem unnið er á vettvangi Íslandsstofu til að markaðssetja og kynna íslenskt lambakjöt erlendis. Það sama á ekki við um annað samstarf, sér í lagi skiptingu markaða og samkomulag um að takmarka vöruframboð á markaði sem mun halda uppi verði,“ segir í bréfi FA.

 „Hugmyndir markaðsráðsins um útflutningsskyldu, sem lögð verði á sláturleyfishafa, eru stórkostlega gallaðar og ólögmætar. Þær munu eingöngu skaða hagsmuni neytenda. Þessar hugmyndir þjóna að meginstefnu því markmiði að halda uppi verði á innlendum markaði með því að skerða framboð. Slíkt er ótækt. Þetta er óhjákvæmilega til tjóns fyrir neytendur og felur ekki í sér neinn ábata þeim til handa. Eru því aldrei uppfyllt þau skilyrði um sanngjarna hlutdeild neytenda sem áskilin eru í b. lið 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga,“ segir í bréfi FA.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK