Ísland 5. í röð 37 Evrópuríkja

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 14% yfir …
Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 14% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016. mbl.is/Ómar Óskarsson

Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2016 var 29% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Ísland var 5. í röð 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu).

Greint er frá þessu á vef Hagstofu Íslands.

Magn vergrar landsframleiðslu á mann árið 2016 var hæst í Lúxemborg 167% yfir meðaltali ESB ríkja en þar á eftir kom Írland þar sem verg landsframleiðsla á mann var 77% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en að sögn Hagstofunnar þarf að líta til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 14% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016. Þar var Ísland 8. í röð landanna 37 og var Lúxemborg í fyrsta sæti 32% yfir meðaltali ESB ríkjanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK